Klikkað góður brokkolí kús kús kjúklingur


Gerði þennan geggjaða kvöldmat, kryddaður kjúklingur á brokkolí kúskús beði með sætum kartöflufrönskum og kaldri sósu með karrý, papríkudufti, hunangi, smokey BBQ sósu, cummin og sítrónusafa.


fannst ég vera borða veitingastaðamat þó ég segi sjálf frá ;)

hér er uppskriftin:

Sæt kartafla skorin í strimla og böðuð í olíu með hvítlauksdufti. sett í ofn í 30 min.
4 kjúklingabringur steiktar á pönnu með mikið af töfrakryddi frá pottagöldrum. þegar kjúllinn hefur verið steiktur þá er bætt við hálfum fínskornum lauk.
brokkolí er síðan mauksoðið.
2 bollar af kús kús sett í 1 bolla af sjóðandi vatni með hálfum kjúklingatenging.
Brokkolíið er skorið í mjög smá bita og þegar kúskúsið er tilbúið er brokkolíinu hent út í og bætt við vænni smjörklípu.

sósan:
1 dolla sýrður rjómi.
1 matskeið cummin
1 matskeið karrí
1/2-1 matskeið papríkuduft
smá slurkur af hunangi og smokey BBQ sósu
smá skvetta af sítrónudufti.
þetta er síðan smakkað þar til að maður verður sáttur með bragðið ;)

enjoy!

Comments

Popular posts from this blog

Barnalands harpo kakan

Frábæru brauðbollurnar hennar Valgerðar

Mælieiningar - Bollar (cups)