Frábæru brauðbollurnar hennar Valgerðar
Fékk þessa geggjuðu uppskrift frá svilkonu minni.
Ég er alls ekki góð að búa til brauð og í hvert sinn sem ég reyni þá endar þetta sem grjótarklumpur.
En ég get lofað ykkur því að þetta klikkar ekki! ég hef gert þetta sem rúnstykki og líka sem heilt brauð.
Ég gerði litlar brauðbollur úr þessu fyrir veislu um daginn og þær kláruðust um leið!
þið getið sett alls konar krydd í þetta, t.d oregano (2 msk) og hvítlauk (4-5 marin rif, fer eftir smekk) en ég ætla að hafa grunnuppskriftina hér:
4 bollar hveiti
2 tsk salt
3 tsk þurrger
2 msk sykur
2 bollar ylvolgt vatn (37°c ca.)
2-3 msk ólífuolía
Egg/mjólk
Blandið öllum þurrefnum saman í skál og hrærið, bætið svo við vatni. Hnoðið deigið vel. Þegar deigið er orðin ágætis kúla þá gerið þið smá holu í deigið og hellið ólífuolíunni í hana og hnoðið saman við mjög, mjög vel.
Setjið deigið aftur í skálina, úðið smá vatni yfir deigið og leggið rakan klút yfir skálina. Látið hefast á hlýjum stað í 45 mín.
Þá er smá hveiti sett á borðplötuna og deigið hnoðað aftur og mótað í bollur. Raðið bollunum saman á bökunarplötu, sláið saman egg og smá mjólk og penslið yfir bollurnar.
Hefið aftur í 45 mín á plötunni og þaðan fara þær inn í ofn.
Bakið við 200°c á blæstri þangað til þær verða gullinbrúnar (tíminn fer eftir ofni)
Comments
Post a Comment