Mælieiningar - Bollar (cups)

Flestar uppskriftir sem ég nota eru teknar af heimasíðum hér og þar sem ég hef rekist á á netinu og oftast er allt mælt þar í bollum.
Ég er frekar mikil nákvæmnismanneskja þegar það kemur að bakstri og og því var ég að verða alveg klikk á að vera að breyta endalaust yfir í dl og gr svo að ég mæli með að koma sér út um mælieiningaskeiðar sem mæla bolla.
Ég fann mínar í ódýru USA búðinni sem opnaði fyrir stuttu í smáralindinni. Sé sko ekki eftir þeim kaupum!
annars hef ég líka oft bara notað þennan bolla frá IKEA þar sem að þetta er nokkurn vegin 1 cup.
Fyrir þá sem eru Nigellu aðdáendur að þá er hún með í línunni sinni bolla sem er nákvæmlega 1 bolli.

Enjoy!

Comments

Popular posts from this blog

Barnalands harpo kakan

Frábæru brauðbollurnar hennar Valgerðar