Kanilsnúðar Fíu
Datt á þessa uppskrift á netinu en man ómögulega hvar. Vona að viðkomandi sé sama að ég setji þetta hér inn ;)
Fékk þvílíka löngun einn sunnudaginn í kanilsnúða og gerði þessa og þeir lukkuðust svona ljómandi vel! :)

500 gr Hveiti (eftir þörfum)
250 gr Sykur
200 gr Smjör eða líki
1 tsk Hjartarsalt
1 1/2 tsk Lyftiduft
2 dl Mjólk
inní deigið:
Mjólk
Kanilsykur: 1tsk kanill og ca 1 dl sykur
Þurrefnunum blandað saman á borðplötu. Smjörið bitað niður og blandað með þurrefnunum. Hola gerð í miðju deigsins og mjólkinni hellt í holuna. Deigið er þá hnoðað saman. Ef það er of blautt, blandið þá meira hveiti saman við þangað til að það loðir ekki við fingurna.
Skipt í 2 helminga og flatt út. Örlítið af mjólk helt yfir útflatta deigið til að bleyta aðeins í þvi og binda kanilsykurinn. Dreifið úr mjólkinni með hreinum fingrum eða pensli. Kanilsykrinum stráð vel yfir allt deigið.
Deigið er því næst rúllað upp og skorið niður í ca 2cm sneiðar og raðað á smjörpappír á bökunarplötu með ca 2 1/2 cm millibili.
Bakað í blástursofni við 170°C þar til snúðarnir eru orðnir fallega gylltir. Þeir verða harðari eftir því sem þeir eru dekkri. Mér finnst persónulega skemmtileg breyting að hafa þá aðeins stökkari.
Njótið vel!

Comments
Post a Comment