Biscotti

Þessa uppskrift rakst ég á í bókinni hollt og ódýrt og baka ég þetta oft þegar ég er að fá fólk í heimsókn. Þetta er alveg meiriháttar með Latte nammm....


3 ½ dl sykur
5 dl hveiti
¼ tsk matarsódi
¼ tsk salt
150 gr möndlur með hýði
4 stór egg
2 msk smjör
1 tsk vanilludropar
1 stk möndludropar
1 dl hveiti til að hnoða með (Ég nota yfirleitt meira því þetta verður ansi klístrað)

1. Ristið möndlurnar á heitri pönnu og setjið þær svo til hliðar til kælingar

2. Blandið sykri, hveiti, matarsóta og salti saman í skál. Bætið eggjum, smjöri, dropum og möndlum út í og hrærið með sleif eða hrærivél þar til deig loðir vel saman (ég hræri allt varlega í hrærivél þangað til að það kemur að möndlunum, þá nota ég sleif). Best er að hræra eins lítið og hægt er.

3. Flytjið deigið á borð þakið hveiti og hnoðið 1 dl aukalega af hveiti saman við deigiðef þarf, deigið á þó að vera pínulítið klístrað.

4. Dustið hendurnar með hveiti og mótið 5 til 6 hleifa (ég geri 4) sem eru um 4x20cm að stærð og raðið þeim á vel smurða bökunarplötu(eða bara smjörpappír). Hafið amk 5 sm á milli hleifanna þar sem að þeira renna út við bökun. Bakið í um 200 g ofni(kannski örlítið minna) í 20 min eða þar til að hleifarnir eru orðnir fallega gullnir, Takið þá úr ofninum og látið kólna.

5. Skáskerið hvern hleif í um 1,5sm þykkar kökur (eða bara þannig þykkt sem ykkur finnst best), raðið þeim á bökunarplötu og bakið aftur í um 10 min(ég hef fyrir því að snúa öllum kökunum við eftir 5 min, þú ræður hvort þú gerir það)

Enjoy!

Comments

Popular posts from this blog

Barnalands harpo kakan

Frábæru brauðbollurnar hennar Valgerðar

Mælieiningar - Bollar (cups)