Geggjaðar banana-kanil-kókos muffins

Þessi uppskrift er alveg meiriháttar góð og skemmtileg tilbreyting á því að baka alltaf banabrauð þegar bananarnir eru orðnir fullþroskaðir til að borða þá! Dóttur minni og manni finnst þetta hrikalega gott og kallinum mínum þykir bananar ekki einu sinni góðir!

þetta er uppskrift sem ég fann á all recipies og bætti við kókos sem er að sjálfsögðu hægt að sleppa!
  • 2 bollar hveiti
  • 1 bolli sykur
  • 2-3 vel þroskaðir bananar
  • 1/2 bolli smjörlíki
  • 2 egg
  • 6 mtsk mjólk
  • 2 1/2 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk kanill (fyrir þá sem vilja meiri kanill þá er hægt að hafa heila teskeið)
  • 1/2 tsk salt
  • hálfur-1 bolli kókos
Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, kanil og salti í eina skál og geymið.
Hrærið saman í aðra skál sykur og smjörlíkið. setjið eitt egg í einu í framhaldi af því.
Bætið við stöppuðum banönununum út í og mjólkina.
Bætið svo loks út í öllum þurrefnunum og kókosinu.

Setjið í möffins form (ath, ekki nema 3/4 af forminu því annars fer þetta allt út um allt í ofninum)
og bakið þar til að kökurnar eru orðnar gylltar og fallegar.
ég giska á svona 10-15 min í ofni, fer eftir stærð formanna.

Bon apetit!

Comments

Popular posts from this blog

Barnalands harpo kakan

Frábæru brauðbollurnar hennar Valgerðar

Mælieiningar - Bollar (cups)