Barnalands harpo kakan


Þessa köku baka ég ansi oft þegar ég er að drepast úr súkkulaðilöngun og þarf sætindi STRAX!
Það er auðvelt að gera hana og allt sem þarf í hana er oftast til inn í skáp.
Þetta er hugsað sem skúffukaka en ég baka hana í venjulegu hringlaga formi og það kemur vel út. hafa bara í huga að hafa mótið nægilega djúpt.



4 1/2 dl sykur
175 g lint smjörlíki
2 egg
4 1/2 dl hveiti
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 dl vatn (kalt)
3 tsk. vanillusykur
1 dl. kakó (dökkt)
1 tsk. salt
2 dl súrmjólk

blandið sykri og smjörlíki saman. eggjum er svo bætt við.
Eftir það fara öll þurrefnin út í.

Bakað í 20-30 mín. við 200 °
Hafið í huga að ef þetta er ekki bakað í skúffu þá tekur þetta lengri tíma.


Ég læt fylgja með uppskrift af kremi:

100 gr brætt smjörlíki
Ca. 6 dl flórsykur >Þetta hrært vel saman.
3 1/2 msk. kakó (dökkt)
3 msk. kaffi
3 tsk. vanillusykur
Þetta er sett út í smjörlíkis- og sykurblönduna og hrært meira.

Verði ykkur að góðu!

Comments

Popular posts from this blog

Frábæru brauðbollurnar hennar Valgerðar

Mælieiningar - Bollar (cups)