Klikkað góður brokkolí kús kús kjúklingur
Gerði þennan geggjaða kvöldmat, kryddaður kjúklingur á brokkolí kúskús beði með sætum kartöflufrönskum og kaldri sósu með karrý, papríkudufti, hunangi, smokey BBQ sósu, cummin og sítrónusafa. fannst ég vera borða veitingastaðamat þó ég segi sjálf frá ;) hér er uppskriftin: Sæt kartafla skorin í strimla og böðuð í olíu með hvítlauksdufti. sett í ofn í 30 min. 4 kjúklingabringur steiktar á pönnu með mikið af töfrakryddi frá pottagöldrum. þegar kjúllinn hefur verið steiktur þá er bætt við hálfum fínskornum lauk. brokkolí er síðan mauksoðið. 2 bollar af kús kús sett í 1 bolla af sjóðandi vatni með hálfum kjúklingatenging. Brokkolíið er skorið í mjög smá bita og þegar kúskúsið er tilbúið er brokkolíinu hent út í og bætt við vænni smjörklípu. sósan: 1 dolla sýrður rjómi. 1 matskeið cummin 1 matskeið karrí 1/2-1 matskeið papríkuduft smá slurkur af hunangi og smokey BBQ sósu smá skvetta af sítrónudufti. þetta er síðan smakkað þar til að maður verður sáttur með bragðið ;) enjoy!