Kanilsnúðar Fíu
Datt á þessa uppskrift á netinu en man ómögulega hvar. Vona að viðkomandi sé sama að ég setji þetta hér inn ;) Fékk þvílíka löngun einn sunnudaginn í kanilsnúða og gerði þessa og þeir lukkuðust svona ljómandi vel! :) 500 gr Hveiti (eftir þörfum) 250 gr Sykur 200 gr Smjör eða líki 1 tsk Hjartarsalt 1 1/2 tsk Lyftiduft 2 dl Mjólk inní deigið: Mjólk Kanilsykur: 1tsk kanill og ca 1 dl sykur Þurrefnunum blandað saman á borðplötu. Smjörið bitað niður og blandað með þurrefnunum. Hola gerð í miðju deigsins og mjólkinni hellt í holuna. Deigið er þá hnoðað saman. Ef það er of blautt, blandið þá meira hveiti saman við þangað til að það loðir ekki við fingurna. Skipt í 2 helminga og flatt út. Örlítið af mjólk helt yfir útflatta deigið til að bleyta aðeins í þvi og binda kanilsykurinn. Dreifið úr mjólkinni með hreinum fingrum eða pensli. Kanilsykrinum stráð vel yfir allt deigið. Deigið er því næst rúllað upp og skorið niður í ca 2cm sneiðar og raðað á smjörpappír á bökunarplötu með ca 2 1/2 cm mill...